Mark Hughes tekur við Fulham
29.7.2010 | 09.57 |
Mark Hughes er aftur mætur í ensku úrvalsdeildina og verður hann næsti knattspyrnustjóri Fulham. Tekur hann við af Roy Hodgson sem er farinn til Liverpool. Ekki er búið að staðfesta þetta en breska ríkissjónvarpið BBC segir að þetta verði kunngert í dag. Hughes hefur þjálfað landslið Wales og verið knattspyrnustjóri hjá Blackburn og Manchester City en hann var rekinn frá Manchester City í desember á síðasta ári. Martin Jol var efstur á blaði hjá Lundúna liðinu en Ajax vildi ekki láta hann fara.